Olíulaus loftpressa – 100 L / 8 bör Retter

Olíulaus loftpressa – 100 L / 8 bör Retter

169,900 kr
Skip to product information
Olíulaus loftpressa – 100 L / 8 bör Retter

Olíulaus loftpressa – 100 L / 8 bör Retter

169,900 kr

Olíulaus loftpressa – 100 L / 8 bör

ATH Pöntunar vara afhending 2-3 vikur

Hljóðlát og olíulaus loftpressa með 100 lítra loftkút og 8 bara hámarksþrýsting. Hentar fyrir fjölbreytt verkefni á verkstæðum og þar sem mikilvægt er að halda hávaða í lágmarki.

Helstu eiginleikar

  • Olíulaus dæla og hljóðlátur gangur.
  • Sterkbyggð úr áli og ryðfríu stáli.
  • Loftkútur dufthúðaður að innan og utan.
  • Gengur fyrir 230 V einfasa rafmagni.

Notkun

Hentar meðal annars fyrir loftburstamálun, sprautumálun og smáviðgerðir á bíllakki, ásamt því að pumpa í bíldekk, reiðhjóladekk og bolta. Einnig má nota hana með loftknúnum heftibyssum, koppafeitisprautum og kíttisbyssum, eftir loftþörf verkfæranna. Hentar einnig á tannsmíðaverkstæðum.

 

Tæknilegar upplýsingar

  • Mótorafl: 3 × 850 W
  • Rafmagn: 230 V / 50 Hz
  • Rúmtak loftkúts: 100 lítrar
  • Hámarksþrýstingur: 8 bör
  • Snúningshraði: 1.400 sn./mín.
  • Loftinntak: 560 l/mín.
  • Uppgefin loftafköst við 0–1 bar: 460 l/mín.
  • Hljóðstig: 69 dB
  • Þyngd: Um 80 kg
  • Mál (lengd × breidd × hæð): 100 × 36 × 77 cm

Loftafköst eru háð vinnuþrýstingi. Uppgefin afköst við 0–1 bar segja ekki til um afköst við 6–8 bör.

You may also like