Retter R8 verkfæravagn 301 verkfæri
RETTER R8 Carbon Edition – verkfæravagn með 301 verkfæri
ATH Pöntunar vara. Afhending 2-3 vikur
Vandaður verkfæravagn með 7 skúffum, sterkri vinnuplötu úr ryðfríu stáli (INOX) og skúffum með áferð í koltrefjastíl. Á hlið vagnsins er sérlæsanlegur skápur með gataðri plötu til að hengja upp verkfæri.
Vagninn er úr styrktu, kaldvölsuðu stáli með duftlökkun og þolir allt að 500 kg kyrrstöðuálag. Sex skúffur eru fullbúnar með samtals 301 verkfæri úr króm-vanadíumstáli (CR-V) og króm-mólýbdenstáli (CR-Mo). Verkfærin liggja í tvílitum EVA-frauðinnleggjum með mynstri í koltrefjastíl.
Helstu eiginleikar:
-
7 skúffur, þar af 6 með verkfærum.
-
301 verkfæri í sérsniðnum EVA-frauðinnleggjum.
-
Vinnuplata úr ryðfríu stáli.
-
Sérlæsanlegur hliðarskápur með verkfærahengiplötu.
-
Miðlæsing með sílinderlás og 2 lyklum.
-
4 sterk hjól með kúlulegum, 125 mm í þvermál.
-
2 snúningshjól með fóthemlum.
-
Þægilegt handfang til að færa vagninn.
-
Hámarksálag í kyrrstöðu: 500 kg.
-
Neðsta skúffan er tóm, með 45 kg burðargetu og rúmgóðu geymsluplássi fyrir eigin verkfæri, meðal annars rafhlöðuverkfæri.
Meðal verkfæra í settinu:
-
3 skröll með 72 tönnum: 1/4″, 3/8″ og 1/2″.
-
Stuttir og langir toppar fyrir allar þrjár stærðir.
-
Svartir, langir 1/2″ höggtoppar fyrir vinnu við álfelgur og hjólabúnað.
-
Samsettir fast-/hringlyklar og hringlyklar með 75° beygju.
-
Torx-, HEX- og Spline-bitar.
-
Verkstæðistangir og lásahringstangir (Seeger).
-
500 g hamar með trefjaplasthandfangi.
-
Úrrekar.
-
Skrúfjárn með mjúku gripi.
-
T-handfangs sexkantar með kúluenda.